Jæja þetta blessaða blogg er orðið ansi þreytt!
Kannski er það sumarið að fara svona í mann...veit ekki!
Kannski hoppar maður í gírinn í haust

En það er ýmislegt í búið að ske!
Ég var ofsótt af geitung, jebb takið vel eftir GEITUNG!!!
...held reyndar að þetta hafi verið hákarl í dulargerfi!
En á sjálfsagt aldrei eftir að komast að því hvaða skrímsli þetta
var!

Þetta byrjaði þannig að við stelpurnar fórum að ræða þjóðhátíð í
rólegheitunum í vinnunni!
...svona fyrst Lúx datt uppfyrir þá fannst okkur upplagt að skella
okkur bara til eyja!
Þannig eftir mikið planerí og og með spenninginn í hámarki...fórum
við eftir vinnu og keyptum okkur þessa fínu sjógalla til að klæðast
í rigningunni sem verður alveg klárlega í eyjum

En síðan vildi svo skemmtilega til að örfáum dögum seinna var þessi
drepleiðinlega rigning og við í vinnunni...þá kom nú gallinn að
góðum notum

En um leið og það stytti upp, kom þessi hlunka geitungur á
ógnarhraða og stemdi beint ofan í hálsmálið hjá mér!!!
Hraðin var svo mikill og ég illa upplögð eftir langan og blautan
dag og viti menn...geitungurinn festist inná mér!!!!!!
Já og það sem meira er ég er ennþá á lífi...og það sem kemur
kannski enn meira að óvart er raddböndin eru í góðu lagi
líka...pínu aum svona eftir öll öskrin! ...en það er ekkert
sem jafnar sig ekki!

En já þið haldið kannski að þessi fólskulega árás geitungsins hafi
endað með stungu í hálsakotið! Hehehehe
Ónei!!!
En það er ekki þar með sagt að hann hafi ekki reynt!
Á meðan ég öskraði úr mér líftóruna og tók viltan regndans þarna í
miðju hamarkotstúni...reyndu Kata og Agnes að finna leið til að
lokka geitunginn út!!!
En þar sem þær voru hræðilega hræddar við þetta monster sem reyndi
að komast úr fötunum mínum var lítið gagn í þeim, en þrátt
fyrir það þykir mér voða vænt um þær!!!

En allir sluppu ágætlega...er reyndar nokkuð viss um að
geitungurinn hafi hlotið varanlega heyrnarskaða!
En honum er nær!!!
En já eins og ég minntist á áðan þá erum við að fara á
þjóðhátið...helmingurinn í fyrsta skipti, en hin helmingurinn er
mjög reyndur og segir okkur hrillingsögur af stífluðum kömrum
ælandi fólki, óveðri...hungri...annarlegu ástandi og
þjófnaði!!!
En þrátt fyrir allt hef ég aldrei verið spenntari fyrir neinu

Við erum semsagt komnar með með miða í herjólf...þetta var orðið
eitthvað tvísýnt hvort við kæmum aftur heim...en það reddaðist
fyrir rest

Síðan vorum við fyrstu akureyringarnir til að kaupa okkur miða inná
svæðið...og ég er ekki að ýkja!!!
En já síðan er verið að segja mér upp á kaffinu

Það eru nýjir eigendur og við fáum nú vinnuna okkar aftur sko!
Annars myndi ég nú ekkert vita hvað ég ætti af mér að gera um
helgar

Þannig ég byrja fyrstu helgina hjá nýjum eigendum með stæl og vinn
alveg heilan haug
kisskiss
Hessan!